
|
Frétt skráð: 26.12.2009 Ákveðið hefur verið að fresta fyrirhugaðri jólagöngu á Staðarbyggðarfjall í Eyjafirði fram til 2. janúars 2010. Ástæðan er mikið fannfergi og óhagstæð snjóalög.
Jólakveðja, 24x24. |
|
Frétt skráð: 22.10.2009
Í lok ágúst var farin óauglýst ferð upp á tvo tinda á Hálendi Íslands. Stefnan var að ganga á Þorvaldsfjall í Dyngjufjöllum og Herðubreið í Ódáðahrauni. Ekið var á föstudagskvöldi og gist í Dreka, skála Ferðafélags Akureyrar við Drekagil í Dyngjufjöllum. Ákveðið var að ganga hringinn í kringum Öskjuvatn þar sem veðurútlit var með allra... MEIRA » |
|
Frétt skráð: 26.09.2009 Ákveðið hefur verið að fresta vörðuhleðslu uppi á Hlíðarfjalli þar sem aðstæður núna eru óhentugar. Snjór uppi á fjallinu og óhagstætt veður undanfarið er ástæðan. En reynt verður aftur ef tækifæri gefst fyrir veturinn, sem þarf alls ekki að teljast ólíklegt. En fylgist með hér á vefnum þar sem við munum tilkynna næstu tilraun með stuttum fyrirvara. |
|
Frétt skráð: 24.09.2009
Helgina, 26. og 27. september, verður hlaðin varða til heiðurs Hlíðarfjalls. Búið er að safna grjóti að vörðustæðinu undanfarnar helgar og vonir standa til um að þetta verði hin glæsilegasta varða. Tómas Júlíusson hleðslumaður mun stjórna verkinu og eru allir áhugasamir og hjálpsamir velkomnir. Byrjað verður kl. 8:00 báða... MEIRA » |
|
|
|
|
7. febrúar, kl. 08:00 Hólafjall í Eyjafirði (Opin ferð) »
ATH. fylgstu með ferðaplaninu dagana fyrir ferð, aðstæður geta breyst hratt og kröfur um búnað geta minnkað eða aukist.
Ef þú hefur óskir um að koma einhverju ákveðnu fjalli inn í dagskrána þá sendu okkur línu » |
|