Skráning er hafin: 24 tindar | 13 tindar | 7 tindar
Til að staðfesta skráningu þarf að greiða þáttökugjaldið. Þáttökugjaldið í ár er 15.000,- kr. Endurgreiðsla fæst ekki eftir 3. júlí. Greitt er inn á reikning félagsins: 0162-26-4031 og kennitala 601005-0180. Síðasti greiðslufrestur er 3. júlí. Ef einhverjir lenda í vandræðum með að að greiða skráningargjaldið endilega hafið samband við okkur.
9 júlí 2010:
Kl. 19:30 undirbúningsfundur.
Staðsetning fundarins er í húsakynnum Björgunarsveitarinnar Súlna, Hjalteyrargötu 12, Akureyri. Skyldumæting er á þennan fund.
10. júlí 2010:
Kl. 7:30 mæting við Skíðastaði í Hlíðarfjalli
Kl. 8:00 lagt af stað í Glerárdalshringinn
--------------------------------------------------------------------------------
Glerárdalshringurinn er stór og umfangsmikill fjallgönguviðburður sem genginn er árlega í júlí. Tímasetningin er valin miðað við bestu aðstæður á svæðinu. Glerárdalur er stór dalur girtur háum fjöllum, þeim hæstu á Tröllaskaga, þar af eru 10 þeirra hærri en 1400 m., Kerling hæst um 1540 m. Glerárdalshringurinn liggur eftir þessum háu fjallatoppum allan hringin umhverfis dalinn.
Staðsetning: Umhverfis Glerárdal vestur af Akureyri.
Upphafstaður: Skíðastaðir í Hlíðarfjalli.
Endastaður: Réttin á Glerárdal, (uppgöngustaður á Súlur).
Hæð yfir sjávarmáli: mest um 1540 m.
Göngulengd í heild: um 45 km.
Gönguhækkun: um 4500 metrar.
Göngutími: 20 - 28 klst.
Erfiðleikastig 





Engin gönguslóð nema í lokin niður af Súlum
Laus jarðvegur og laust grjót, stórgrýtt og mjög stórgrýtt.
Margir brattir kaflar.
Þarf stundum að nota hendur og oft að styðja sig með höndum.
Oft farið yfir snjó og jökla.
Sérstakar hættur!
Grjóthrun frá öðrum göngumönnum. Mikilvægt að gæta vel að því að setja ekki af stað grjót, ef fólk er fyrir neðan þegar það gerist ber að kalla strax GRJÓT til að vara aðra við.
Fjallganga ekki hlaupakeppni
Glerárdalshringurinn er gengin, ekki hlaupinn, og þetta er ekki keppni. Göngufólki er ekki leyfilegt að fara á undan leiðsögumönnum og göngufólk verður að fara eftir fyrirmælum leiðsögumanna. Aðstæður eru svo breytilegar að það er langt frá því raunhæft að bera saman göngutíma milli ára. Hvort heldur sem þú ferð á 20 tímum eða 28 tímum. þá hefur þú lokið mikilli þolraun, það er það sem skiptir máli. Sumir sem hafa farið í hraðasta hóp hafa haft á orði að þeir ætli aftur en þá í hægari hóp til að njóta ferðarinnar betur, það er rétta viðhorfið.
Skipt í hópa
Þátttakendum er skipt í þrjá hópa, A, B og C sem fara mis hratt yfir.
A - 2.2 km. meðalhraði og er um 20 tíma á leiðinni. Fyrir fólk í topp líkamlegri þjálfun, mjög góðu fjallgönguformi og er vant erfiðu göngulandi og löngum leiðum. Í þessum hópi gefst lítill tími til að stoppa, einungis stoppað til að nærast. Yfir sum fjöllin er gengið án þess að stoppa á toppnum.
B - 1,9 km. meðalhraði og er um 24 tíma á leiðinni, fyrir fólk í góðu fjallgönguformi og hefur reynslu af erfiðu göngulandi. Stoppað á öllum toppum.
C - 1,6 km. meðalhraði og er um 28 tíma á leiðinni,
fyrir fólk í góðu fjallgönguformi. Þessi hópur stoppar á öllum fjöllum og gefur sér góðan tíma til að anda á milli toppa.
Göngumönnum ber að halda sig í sínum hópi á leiðinni en geta þó fært sig úr hóp A, hraðasta hópnum, í B og úr B í C. Leiðsögumenn fylgjast með hvort einhverjir haldi ekki í við hópinn og ættu frekar að fara í hægari hóp. Göngumönnum ber að virða ákvörðun leiðsögumanna. Einnig getur komið til þess að hverjum hóp verði skipt upp þegar lengra er liðið á gönguna og sumir orðnir mun þreyttari en aðrir.
Hætt á miðri leið
Ef þú þarft einhverra hluta vegna að hætta einhvers staðar á leiðinni eða færa þig niður um hóp þá tilkynnir þú fararstjóra um það. Fararstjóri sér um að skipuleggja niðurgöngu þína því ekki er hægt að fara niður hvar sem er. Hann tilkynnir það til fjarskiptamiðstöðvar Súlna. Þegar þú kemur niður á veg, hringir þú í Súlur og lætur vita af þér. Það er mjög mikilvægt til þess að leitarferli fari ekki í gang.
Búnaður og næring:
Góðir gönguskór uppháir sem hlífa ökkla, millistífir hafa reynst best. Um nóttina getur snjórinn frosið og orðið harður og hefur reynst erfitt að vera í mjúkum gönguskóm.
Fatnaður til vetrarferðar, leiðin liggur í 1100-1500 m. hæð,
það getur orðið mjög kalt og mikil vindkæling. Einnig þarf að gera ráð fyrir að geta verið léttklæddur því hitinn getur verið á bilinu -5 til + 20°C.
Göngustafir.
Bakboki, 25-35 lítra er hæfilegt.
Kraftmikið nesti, t.d.: Gróft brauð/flatbrauð með góðu áleggi, bananar, harðfiskur, orkustangir, orkugel, orkuduft til að blanda út í vatn, próteinstangir, þurrkaðir ávextir. Þetta er löng leið svo líkaminn þarf líka prótein ekki bara kolvetni. Einnig er mikilvægt að borða t.d. brauð áður en orkugel er tekið. Gott er að taka inn vítamín og steinefni, sérstaklega kalk og magnesium dagana fyrir.
Vatn að drekka. Gengið er eftir vatnaskilum þess vegna er ekkert vatn nema á örfáum stöðum og geta verið 6 til 8 klst. á milli vatnsbóla. Þess vegna verður þú að taka með þér vatn strax í upphafi ferðar, 2 lítrar er hæfilegt.
Salernispappír. Engir skálar eru á leiðinni og þar af leiðandi engin salerni!
GSM sími til öryggis, það er gott samband á leiðinni.
Sólgleraugu og sólarvörn, þarna uppi getur verið mikil geislun.
Sjúkragögn, plástur, hælsærisplástur, teygjubindi, teip, varasalvi.
Myndavél. (Lítill timi gefst til að mynda í A-hópi)
Hugarfar til að takast á við mikla þolraun ;)
Umgengni
Ávalt skal ganga vel um landið og alls ekki skilja eftir rusl. Lífrænan úrgang eins og bananahýði skal setja undir steina svo sjáist ekki í það.
Öryggi
Björgunarsveitin Súlur á Akureyri verður með fjarskiptamiðstöð meðan á göngunni stendur og fylgist með göngumönnum. GSM samband er mjög víða á leiðinni. þú verður að hafa með þér síman sem þú gefur upp við skráningu. Þeir sem fara út af leiðinni þurfa að tilkynna sig til miðstöðvarinnar þegar þeir koma niður. Símanúmerið sem á að hringja í er: 894 4238.
Ítarefni
Lýsing á hringnum 2005 »
Hæðarferill og tölfræði »
Kort af leiðinni »