www.24x24.is

Ferðafréttir og myndir

Ferðir á vegum 24x24 eru farnar allan ársins hring og hafa verið í kringum 30 ferðir á ári síðast liðin ár. Hér eru fréttir af ferðum á vegum 24x24 hópsins. Fréttasafnið er einnig myndasafn þar sem inni í fréttunum er hægt að skoða myndir úr hverri ferð. Smelltu á "Nánar" hnappinn til að opna hverja frétt.



Hlaðin varða

varda_hlidafjall_180Á laugardaginn síðast þann  21. ágúst 2010 mættu hópur manna og kvenna í vörðugerð upp á Hlíðarfjalli.  Þar fór Tommi Júl (hleðslumeistari) fremstur í flokki.  Uppúr kl 7:00 var lagt af stað frá Skíðahótelinu og keyrt upp að brún en ekki reyndist unt að keyra alla leið vegna snjóþyngsla.  Snjóað hafði um nóttina svo Hlíðarfjallið ...... 

Nánar...

 

Glerárdalshringnum 2010 lokið

Ágætis þátttaka var í þetta skiptið og viljum við aðstandendur þakka öllum kærlega fyrir komuna. Alls voru 60 þátttakendur. En 59 lögðu af stað frá Skíðahótelinu í Hlíðarfjalli rétt yfir 8 að morgni laugardags 10. júlí 2010. Það voru 35 göngumenn sem fóru allan hringinn. 19 fóru niður eftir 13 tindana E hópur, en þá er farið niður eftir Jökulborg og gengið niður að Þverárrétt í Öxnadal. 2 voru í F hóp og gengu þeir um kvöldið upp á Kerlingu frá Finnastöðum, fóru í útsýnisleiðangur uppi á Kerlingu og gengu svo niður Súluhrygginn alls 7 tindar. Aðrir 3 göngumenn fóru niður á öðrum stöðum, s.s. niður í Glerárdal, aðrir tveir gengu upp á Jökulborg um Þverárdal og Lambárdal.

Nánar...

 

Jónsmessugangan 2010

jonsmessa2010_180Hin árlega Jónsmessuganga var gengin laugardaginn 19. júní 2010 í mjög kaflaskiptu veðri.  Safnast var saman við réttina við Dagverðartungu í Hörgárdal, þar voru samankomin 8 manns sem ætluðu að reyna sig í erfiðri göngu norður vatnaskilin við Skíðadal.

Nánar...

 

Kötlufjall - Reistrarárfjall

kotlufjall_180Sunnudagurinn 30. maí strax eftir að úrslit kostningana voru ljós héldu hressir göngumenn af stað (þótt sumir lægju heima í þunglyndi) til að ganga á Kötlufjall og Reistrarárfjall út með firði.  Stillt var í veðri, skýjað og um 10 gráðu hiti.  Keyrt var sem leið lá að bænum Götu (eyðibíli) sem er rétt undir rótum Kötlufjalls....   

 

Nánar...

 

Rimafjall á Hvítasunnudegi

Rimar_180Hvítasunndagurinn 23. maí 2010 var nýttur til hins ýtrasta og gengið á Dagmálahnjúk, Messuhnjúk og Rimafjall í Svarfaðardal. Þessi ferð var einskonar rannskóknarferð vegna fyrirhugaðrar jónsmessugöngu þ. 19 júní.  Rannsóknarfyrirbærið var hvort fjöllin á þessu svæði væri fyrir alla (vana sem óvana).  Ferðin gekk í alla staði vel sól og brjáluð ...

Nánar...

 

Tungnafjall 16.maí 2010

tungnafjall_180Í þoku og súða héldu 5 hressi fjallagarpar af stað inn Eyjafjörð til að sigra fjallið Tungnafjall (1022m).  Við héldum snemma af stað því Ragnar (komúnistinn) þurfti að halda framboðsfund fyrir 60+ snemma um daginn og ekki vildum við skamma það fyrir honum (tuðaði um það .....

Nánar...

 
Fleiri greinar...
Fjallgöngur á næstunni
Dyrfjöll við Borgarfjörð Eystri
Við höfum skipulagt í samstarfi við Ferðafélag Fljótsdalshéraðs og Wildboys ferð upp á hæsta tind Dyrfjalla (Súlur) þann 11. semptember n.k.


Sjá allar ferðir á dagskrá
Brot úr myndasafni

Flickr + Highslide encountered an error

Error: Invalid API Key (Key has expired)

Innskráning