www.24x24.is

Glerárdalshringnum 2010 lokið

Ágætis þátttaka var í þetta skiptið og viljum við aðstandendur þakka öllum kærlega fyrir komuna. Alls voru 60 þátttakendur. En 59 lögðu af stað frá Skíðahótelinu í Hlíðarfjalli rétt yfir 8 að morgni laugardags 10. júlí 2010. Það voru 35 göngumenn sem fóru allan hringinn. 19 fóru niður eftir 13 tindana E hópur, en þá er farið niður eftir Jökulborg og gengið niður að Þverárrétt í Öxnadal. 2 voru í F hóp og gengu þeir um kvöldið upp á Kerlingu frá Finnastöðum, fóru í útsýnisleiðangur uppi á Kerlingu og gengu svo niður Súluhrygginn alls 7 tindar. Aðrir 3 göngumenn fóru niður á öðrum stöðum, s.s. niður í Glerárdal, aðrir tveir gengu upp á Jökulborg um Þverárdal og Lambárdal.

Veður var stillt en þoka allan tíma og snjókoma fyrir ofan 1300 metra línuna og biðjumst við innilegar afsökunar á því og vonum að þetta komi ekki fyrir aftur. Þó svo erfitt geti verið að skipuleggja veðrið þá gekk allt annað upp og allir komu heilir niður. Allir fengu súpu við niðurkomuna á Súlum, Viðar líka.

Þeir sem luma á góðum myndum mega mjög gjarnan senda okkur valdar myndir. Einnig þeir sem eru með sín eigin myndaalbúm á netinu geta sent okkur tengil þá getum við bætt inn í þessa frétt. Sendið myndirnar á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. (minnkið myndirnar gjarnan áður en þið sendið þær t.d. 800x600 eða 800x533 og látið koma greinilega fram hver tók þær). Einnig má koma með myndir á CD til Ragnars í JMJ.

Til þess að hafa skipulag og upplýsingar enn betra næst þætti okkur vænt um að fá ábendingar frá ykkur göngumönnum - bæði um það sem ykkur fannst vel gert og það sem betur mætti fara. Þið getið farið inn á spjallið okkar og skrifað þar eða sent ábendingar á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. >>.

Kærar fjallakveðjur og hamingjuóskir til allra þátttakanda,
Aðstandendur Glerárdalshringsins 24x24.

ATH. Myndir eru væntanlegar mjög fljótt.

 
Fjallgöngur á næstunni
Dyrfjöll við Borgarfjörð Eystri
Við höfum skipulagt í samstarfi við Ferðafélag Fljótsdalshéraðs og Wildboys ferð upp á hæsta tind Dyrfjalla (Súlur) þann 11. semptember n.k.


Sjá allar ferðir á dagskrá
Brot úr myndasafni

Flickr + Highslide encountered an error

Error: Invalid API Key (Key has expired)

Innskráning