www.24x24.is

Kötlufjall - Reistrarárfjall

kotlufjall_180Sunnudagurinn 30. maí strax eftir að úrslit kostningana voru ljós héldu hressir göngumenn af stað (þótt sumir lægju heima í þunglyndi) til að ganga á Kötlufjall og Reistrarárfjall út með firði.  Stillt var í veðri, skýjað og um 10 gráðu hiti.  Keyrt var sem leið lá að bænum Götu (eyðibíli) sem er rétt undir rótum Kötlufjalls.  Tóku gögnumenn því rólega á leið upp norðurhrygg fjallsins, nánast snjólaust en nokkuð blautt.  Lítið bar til tíðind á leið okkar upp nema ef ske kynni að Ása (nýliðinn) týndi neðsta partinum af öðrum stafnum og gekk hún þá skökk eftir það.   Þegar upp var komið blasti við okkur Eyjafjörðurinn í allri sinni dýrð, komin var svona sólarglenna og frábært gönguveður.  Nokkuð mikill snjór var uppá fjallinu og þónokkuð gljúpur svo við gengum eftir brún Kötlufjalls þar sem það var auðveldara og sumir orðnir strax blautir í fæturna.  Gengum við eftir endilöngu Kötlufjalli, niður um Þorvaldsskarð og upp á Reistrarárfjall.  Reynt var að renna sér niður skarðið en snjórinn var svo gljúpur að ekkert gekk.  Eftir lögbundna matarpásu og "grubbe billede" upp á Reistrarárfjalli var haldið nokkurnvegin sama leið til baka.  Vel gekk niðurleiðin, fyrir utan aðeins glöngur um smá kletta ofarlega í Kötlufjalli.  Þegar hér var komið ætlaði Sigurjón að þræða sama track niður í von um að finna restina af stafnum sem tíndist á uppleiðinni en aðeins fyrir ótrúlegt innsæi og þefvísi fararstjórans (ekki það að skráarritari sé nokkuð hlutdrægur) þá gengum við beint á stafinn við mikinn fögnuð nýliðans.  Annað bar ekki til tíðinda í ferðinn,  sælir og sáttir göngumenn héldu heim á leið eftir fína ferð.

 

 

 

 
Fjallgöngur á næstunni
Dyrfjöll við Borgarfjörð Eystri
Við höfum skipulagt í samstarfi við Ferðafélag Fljótsdalshéraðs og Wildboys ferð upp á hæsta tind Dyrfjalla (Súlur) þann 11. semptember n.k.


Sjá allar ferðir á dagskrá
Brot úr myndasafni

Flickr + Highslide encountered an error

Error: Invalid API Key (Key has expired)

Innskráning