www.24x24.is

Rimafjall á Hvítasunnudegi

Rimar_180Hvítasunndagurinn 23. maí 2010 var nýttur til hins ýtrasta og gengið á Dagmálahnjúk, Messuhnjúk og Rimafjall í Svarfaðardal. Þessi ferð var einskonar rannskóknarferð vegna fyrirhugaðrar jónsmessugöngu þ. 19 júní.  Rannsóknarfyrirbærið var hvort fjöllin á þessu svæði væri fyrir alla (vana sem óvana).  Ferðin gekk í alla staði vel sól og brjáluð blíða nánast allan tíma, með mátulegri loftkælingu inn á milli.  Lögðum snemma af stað frá Akureyri, eða á slaginu 7:00 og keyrðum áleiðis til Dalvíkur, beygðum á afleggjaranum inn Svarfaðardal og lögðum bílunum við bæinn Uppsali þar sem við hófum uppgönguna.  Frekar svalt var í veðri og þoka niður undir fjallsrætur svo  við vissum ekki hvort við gengjum uppúr henni eða ekki.  Af stað var haldið og stefnan tekin á Dagmálahnjúk og þegar við vorum komin langleiðina (í um 700m) fór að glitta í heiðan himinn og fljótlega gengum við uppúr þokunni og hélst það þannig allan tímann eftir það.  Komumst fljótt á fyrsta hnjúk (Dagmálahnjúk) og þá var bara stefna á þann næsta sem heitir Messuhnjúkur en til þess þurftum við að ganga yfir mjóa egg þar sem við þurftum að fara með gát.  Færið var ýmist hart og fljótgengið eða mjúkt svo við sukkum upp undir klof.  Áfram komumst við áfallalaust yfir Messuhnjúk og Rimafjall þar sem við tókum okkar lögboðnu matarpásu og hlóðum batteríin.  Þar tókum við af okkur bakpokana og héldum legnra suður þar sem við vildum skoða nánar svæði sem var þónokkuð mjó egg og vildum við sjá hvort væri fært fyrir óvana sem vana.  Niðurstaða þeirrar rannsóknar var að þetta svæði væri ekki fyrir óvana og alls ekki fyrir lofthrædda.  Niðurleiðin gekk heldur betur hratt fyrir sig þar sem við nýttum þyngdarlögmálið og sleipar buxur, þ.e. við renndum okkur niður á rassinum úr 1100m hæð niður í ca 350m á nokkrum mínútum.  Göngumenn komu þreyttir en sáttir og sælir að bílunum eftir 9klst og tæplega 18km göngu.

Frábær ferð í alla staði.

 

 

 

 

 
Fjallgöngur á næstunni
Dyrfjöll við Borgarfjörð Eystri
Við höfum skipulagt í samstarfi við Ferðafélag Fljótsdalshéraðs og Wildboys ferð upp á hæsta tind Dyrfjalla (Súlur) þann 11. semptember n.k.


Sjá allar ferðir á dagskrá
Brot úr myndasafni

Flickr + Highslide encountered an error

Error: Invalid API Key (Key has expired)

Innskráning