www.24x24.is

Gengið var á Hólafjall þ. 21 feb.

Uppstilling á HólafjalliÞann 21. febrúar 2010 var gengið á Hólafjall. Gengið var frá Þormóðsstöðum í Sölvadal,  upp með gamla veginum upp úr Eyjafirði upp á Miðdegisöxl og Nónöxl.  Þaðan upp á hið eiginlega Hólafjall.  Fengum alveg frábært veður og snjór ekki til trafala.  Gengum fram eftir Hólafjalli í leit af hæsta punkti og hann fannst í ...

Nánar...

 

Gengið var á Brekkufjall

brekkufjall_180Þann 24. janúar 2010 var gengið á Brekkufjall. Ferðin gekk í alla staði vel og voru allir glaðir og sáttir.

Nánar...

 

Öskjuhringur og Herðubreið

oskjuhringur_forsida180Í lok ágúst var farin óauglýst ferð upp á tvo tinda á Hálendi Íslands. Stefnan var að ganga á Þorvaldsfjall í Dyngjufjöllum og Herðubreið í Ódáðahrauni. Ekið var á föstudagskvöldi og gist í Dreka, skála Ferðafélags Akureyrar við Drekagil í Dyngjufjöllum.Ákveðið var að ganga hringinn í kringum Öskjuvatn þar sem veðurútlit var með allra...

Nánar...

 

Glerárdalshringnum 2009 lokið

Met þátttaka var í þetta skiptið og viljum við aðstandendur þakka öllum kærlega fyrir komuna. Alls voru 135 þátttakendur. En 129 lögðu af stað frá Skíðahótelinu í Hlíðarfjalli rétt yfir 8 að morgni laugardags 11.7.2009. Það voru 115 göngumenn sem fóru allan hringinn. 7 fóru niður eftir 13 tindana E hópur, en þá er farið niður eftir Jökulborg og gengið niður að Þverárrétt í Öxnadal. 6 voru í F hóp og gengu þau um kvöldið upp á Kerlingu frá Finnastöðum, fóru í útsýnisleiðangur uppi á Kerlingu og gengu svo niður Súluhrygginn alls 7 tindar. Aðrir 7 göngumenn fóru niður á öðrum stöðum, s.s. niður í Glerárdal að vestan, niður Finnastaðadal eftir Stórastall og niður Kvarnárdal eftir Kerlingu niður í Eyjafjörð.

Nánar...

 
Fjallgöngur á næstunni
Dyrfjöll við Borgarfjörð Eystri
Við höfum skipulagt í samstarfi við Ferðafélag Fljótsdalshéraðs og Wildboys ferð upp á hæsta tind Dyrfjalla (Súlur) þann 11. semptember n.k.


Sjá allar ferðir á dagskrá
Brot úr myndasafni

Flickr + Highslide encountered an error

Error: Invalid API Key (Key has expired)

Innskráning