Allt frá því í haust þegar fréttist af stóru jarðfalli inn í Villingadal var rætt um að við yrðum að kíkja á vegsumerki þar. Það varð úr í lok nóvember að sú ferð var sett á dagskrá og var hugsuð sem síðasta ganga fyrir jól. Kalt var í veðri en snjólétt, veðurspáin var svona þokkaleg og mátti búast við smá ofankomu á leiðinni. Nokkuð góð þáttaka var í ferðinni en níu manns og einn hundur voru mætt við Glerárskóla (og tveir göngumenn bættust við á leiðinni). Keyrt var inn í Villingadal og bílum lagt við eina bæinn í dalnum (Ytri-Villingadal). Gengið var síðan inn dalinn meðfram girðingum, ekki var mikill snjór en klakabunkar, þurftum við að komast yfir Svartánna sem rennur úr Svardal og gekk það ágætlega. Þá var stefnan sett á Leyningsöxl sem klífur Svardal og Leyningsdal og ætluðum við fara þar uppá og láta það duga, en það átti ....